Með okkar vörum
Use this section to highlight different products within an image with an integrated carousel
Handgert í Garðabæ
Handgerðir súkkulaðihringir í fallegum gjafaöskjum. Fyrir þig, fjölskylduna, vini og viðskiptavini.
Silkimjúkt appelsínusúkkulaði með ristuðum möndlum og tvist af sjávarsalti framkallar fullkomið bragðjafnvægi - algert kröns! Rifsberin fullkomna þetta augnakonfekt og bragðupplifun sem kallar fram ljúfar hátíðarminningar.
Falleg jólaaskja með 12 handgerðum súkkulaðihringjum, tveimur af hverri bragðtegund. Hver hringur er 30 g (alls 360 g) og öskjan er glúteinlaus. Tilvalin í jólapakkann, á kaffiborðið eða sem gjöf til starfsfólks og viðskiptavina.
Circolo er lítið framsækið matvælafyrirtæki rekið af tvíburunum Önnu Mörtu og Lovísu.
Fyrirtækið framleiðir ferskar, hollar og náttúrulegar matvörur úr hágæða hráefni án allra aukefna. Vörurnar eru meira en bara safn af hráefnum - þær endurspegla lífstíl Önnu Mörtu og Lovísu og hugmyndafræði. Lögð er rík áhersla á að vörurnar séu ljúffengar og aðlaðandi og færi fólki vellíðan og jákvæða upplifun.
Use this section to highlight different products within an image with an integrated carousel
Use this section to highlight different products within an image with an integrated carousel
Okkar nálgun
Hjá Circolo eru framleiddar ferskar, hollar og náttúrulegar matvörur úr hágæða hráefnum án allra aukefna. Fyrirtækið leggur áherslu á að vörurnar séu bæði ljúffengar og aðlaðandi og færi fólki vellíðan og jákvæða upplifun. Allar vörurnar eru unnar í höndunum í fageldhúsi með ströngum gæðaeftirlitsstöðlum.
Námskeið í matreiðslu á hreinu og fersku hráefni þar sem gleði og núvitund umlykja matinn. Frábær kvölstund með fræðslu, matreiðslu og upplifun með matgæðingnum Önnu Mörtu.
Hentar 20 manna hópum eða stærri.
Anna Marta hefur hannað prógram fyrir þá sem vilja breyta mataræði sínu og auka lífsgæði með hreinni og næringarríkri fæðu.
Þú færð stuðning, þjálfun og matarprógramm sem hentar þér og þínu lífi. Þetta er algjörlega á þínum forsendum. Anna Marta er stuðnings- og aðhaldsbolti sem hjálpar þér inn á rétta braut.
Hún hjálpar þér að breyta þeim hlutum í þínum lífstíl sem eru ekki endilega að þjóna þér og koma inn með nýjar og nærandi venjur.

HRINGUR Tropic er fullur af sætum trönuberjum, sólkjarna- og graskersfræjum og ljúffengum kókos. Hugmyndin varð til fyrir mörgum árum þegar okkur langaði í eitthvað sætt og hollt. Útkoman varð svo ljúffeng og falleg að við vildum deila gleðinni. Súkkulaðisætbiti sem slær í gegn.
CIRCOLO ehf er matvöru- og lífstílsfyrirtæki stofnað af Önnu Mörtu Ásgeirsdóttur árið 2019. Fyrirtækið á rætur sínar að rekja til djúprar ástríðu hennar fyrir hollum mat, hreyfingu og góðum lífsvenjum.