Fiskur með pestó og fetaosti 💚

Fiskur með pestó og fetaosti 💚

Það er hægt að vera með hvað fisk sem er eða jafnvel kjúkling i þessum rétt.

Innihald (fyrir 3-4 manns):

  • 1 kg þorskhnakkar
  • 3 msk grænt pestó
  • Sítrónupipar eftir smekk
  • Sjávarsalt eftir smekk
  • 1 box af kirsuberja tómötum
  • ½ kubbur grískur fetaostur


Aðferð:

  1. Hitið ofn í 200°C (blástur).
  2. Setjið fiskinn í eldfast mót. Smyrjið fiskinn með pestó og kryddið með sítrónupipar og sjávarsalti.
  3. Fetaosturinn er skorin í litla bita og stráð yfir fiskinn . Skerið cherry tómata í tvennt og setjið yfir fiskinn.
  4. Bakið í 25–35 mínútur, eða þar til fiskurinn er fulleldaður
  5. Berið fram með fersku salati, sætum kartöflum og eða hrísgrjónum

Undirbúningur: 20 mín.

Fyrri
Næsta