ÍSBJÖRNINN HRINGUR
Ísbjörninn Hringur er lukkudýr Barnaspítala Hringsins. Þar kemur hann fram og hefur ofan af fyrir börnunum á spítalanum, skemmtir þeim og fræðir. Anna Marta Ásgeirsdóttir og eiginmaður hennar Ingólfur Örn Guðmundsson færðu hann Barnaspítalanum að gjöf eftir að hafa fjármagnað hann með brúðkaupsgjöfunum sínum, en þau giftu sig árið 2005. Í stað þess að fá gjafir báðu þau veislugesti að aðstoða sig við koma þessu góðgerðarverkefni af stað.
Circolo styrkir samfélagið Vinir Hrings, sem heldur utan um Hring ísbjörn — gleðigjafa Barnaspítala Hringsins.
Hringur er kátur og skemmtilegur ísbjarnargaur sem kemur 3–4 sinnum í mánuði í heimsókn á Barnaspítalann. Þar gleður hann bæði lítil og stór hjörtu — og starfsfólkið ekki síður.
Til að viðhalda og fjármagna verkefnið hóf Anna Marta árið 2015 að búa til súkkulaðið Dásemd, sem hún seldi fyrir jólin til styrktar Hrings. Með því tókst henni að halda verkefninu gangandi, og enn í dag heimsækir Hringur börnin á spítalanum sem bíða hans jafnan með mikilli eftirvæntingu.
Í desember fagna Vinir Hrings 20 ára afmæli — Hringur er sem sagt að verða tvítugur! 🥳
Circolo heldur verkefninu áfram gangandi með sölu á súkkulaði.
