2-3 kjúklingabringur
3-4 msk. pestó ANNA MARTA
½ kubbur fetaostur án olíu, skorinn í litla bita
1 askja kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
½ mangó, skorið í bita
½ rauðlaukur, skorinn í sneiðar
1 poki salatblanda
sítrónupipar
gróft salt
Skerið kjúklinginn í litla bita og steikið á pönnu með pestói, kryddið með sítrónupipar og grófu salti. Setjið allt hráefnið saman í skál nema salatblönduna og blandið vel saman. Blandið að síðustu salatinu saman við. Smakkið til og bætið við meira pestói, sítrónupipar og grófu salti, eftir smekk
Undirbúningur: 15 mín.