Þessi einstaka og litríka pizza kemur heldur betur á óvart! 🩷🩵🧡💛💚
Hráefni
- 1 stk Liba flatbrauð ( fæst í flestum stórverslunum, frystivara)
- 2-3 msk Grænt PESTÓ frá ANNA MARTA
- ¼ - ½ Vegan feta kubbur - Þú getur einnig nýtt þann ost sem þú elskar
- ½ fersk pera skera niður í þunnar sneiðar
- ½ fersk rauðrófa skera niður í þunnar sneiðar
- Krydd frjálst val (ég setti smá chilly krydd yfir)
Aðferð
- 1.Smyrjið Liba flatbrauðið með pestó og myljið fetaostinn yfir flatbrauðið. Þar á eftir eru settar þunnar sneiðar af rauðrófu og peru.
- 2.Bakið í ofni við 180-200°C í 5-7 min.
- 3.Eftir bakstur er best í heimi að setja meira pestó og bæta við fersku salati🥬💚