Kjúklingur með pestó og döðlumauki 💚🤎
Innihald (fyrir 3-4 manns):
• 1 kg kjúklingabringur
• 3 msk grænt pestó
• 3 msk döðlumauk
• Sítrónupipar eftir smekk
• 1 box af cherry tómötum
• ½ kubbur grískur fetaostur
Aðferð:
-
Hitið ofn í 200°C (blástur).
- Skerið kjúklingabringur í tvennt og raðið í eldfast mót. Smyrjið pestó og döðlumauki yfir kjúklingabringurnar og kryddið með sítrónupipar.
- Fetaosturinn er svo skorin í litla bita og stráð yfir bringurnar. Skerið cherry tómata í tvennt og setjið yfir bringurnar.
- Bakið í 25–35 mínútur, eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður
- Berið fram með fersku salati, sætum kartöflum og eða hrísgrjónum
Undirbúningur: 20 mín.