4 kjúklingabringur, skornar í bita
3 msk. döðlumauk
1 hvítlauksrif pressað
1 msk. olía
1 dós kókosmjólk eða 1 peli rjómi
Steikið saman hvítlauk og döðlumauk í olíu í u.þ.b. 1 mín. Setjið kjúklinginn á pönnuna með maukinu. Þegar kjúklingurinn er eldaður bætið kókosmjólkinni (eða rjómanum) út í. Einnig má bæta við meira döðlumauki. Kryddið eftir smekk. Berið fram með salati og hýðishrísgrjónum
Undirbúningur: 25 mín.