Skilmálar
ALMENNIR SKILMÁLAR
Circolo ehf. tekur enga ábyrgð á innsláttarvillum eða röngum upplýsingum sem birtar eru á vefsvæði circolo.is. Þá eru meðtalin verð, vörulýsingar, uppskriftir og lýsing á þjónustum í boði. Circolo ehf. áskilur sér rétt til að breyta verðum, vöru og þjónustuupplýsingum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
Öll verð í netverslun eru með virðisaukaskatti (VSK) sem er annars vegar 11% fyrir matvörur og hins vegar 24% fyrir aðrar vörur og þjónustu.
TRÚNAÐUR
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin og á póstlista Circolo ehf. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila að undanskildum upplýsingum fyrir flutningsaðila til að koma megi vörum til kaupanda.
NOTKUN Á PERSÓNUUPPLÝSINGUM
Sendingar úr kerfi netverslunar kunna að nota persónuupplýsingar, s.s. búsetu, aldur eða viðskiptasögu, til að útbúa viðeigandi skilaboð til meðlima síðunnar. Þessar upplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila. Meðlimir netverslunnarinnar geta ætíð afskráð sig og þannig neitað fyrirtækinu notkun á slíkum upplýsingum. Sjá nánar um persónuverndarstefnu.
AFHENDING OG AFGREIÐSLA VÖRU
Afhending vöru fer einungis fram með póstsendingu og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar flutningsaðila um afhendingu vörunnar. Circolo ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Circolo ehf. áskilur sér einn virkan dag til að afgreiða pöntun og koma til flutningsaðila. Ef vara er uppseld getur afgreiðslutími verið allt að 10 virkir dagar. Haft verður samband við viðkomandi viðskiptavin ef fyrirséð er að afgreiðslutími standist ekki.
Pantanir sem berast fyrir klukkan 15:00 virka daga berast yfirleitt viðtakanda næsta virka dag.
AFSLÆTTIR OG TILBOÐ
Afslættir og afsláttarkóðar (coupon) gilda ekki fyrir vörur sem fyrir eru á tilboði eða með öðrum tilboðum. Fyrir pantanir sem innihalda eingöngu vörur á tilboði gilda ekki fríar póstsendingar sé það í boði á vefnum.
SKIL EÐA SKIPTI Á VÖRUM
Skilaréttur á vöru er 14 dagar að því tilskildu að varan sé ónotuð, henni skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki vera búið að rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Ef verðbreytingar verða á vöru á þessum 14 dögum er hún tekin til baka á gildandi söluverði þann dag sem varan var keypt.
ATH. Vörur keyptar á útsölu fæst ekki skilað.
HÖFUNDARRÉTTUR OG VÖRUMERKI
Allt efni á netsíðunni circolo.is, eins og texti, grafík, lógó, hnappar, táknmyndir, myndir og hugbúnaður er annað hvort í eigu Circolo ehf. eða annara birgja. Því er öll notkun á efni af vefsíðunni háð leyfi frá eiganda þess.
LÖGSAGA OG VARNARÞING
Komi til málshöfðunar milli kaupanda og seljanda um túlkun á skilmála þessa, gildi þeirra og efndir skal reka það fyrir Héraðsdómur Reykjaness.
UPPLÝSINGAR UM Circolo ehf
| Nafn | Circolo ehf |
| Heimilisfang | Miðhraun 22 |
| Sími | 8218152 |
| Netfang | circolo@circolo.is |
| Kennitala | 691105-0670 |
| VSK númer | 89903 |