

Matarþjálfun
Matarþjálfun er 4 vikna námskeið í bættum lífsvenjum í kringum næringu og mataræði. Matarþjálfunin byrjar með viðtali þar sem við förum yfir matarvenjur þínar. Við förum yfir hvernig hægt er að breyta þeim með því markmiði að hámarka næringarinntöku þína. Við skoðum hvernig skipulag dagsins er hjá þér, hvernig vinnan og fjölskylda hefur áhrif á matarval þitt og finnum í kjölfarið leiðir til að ná meiri árangri.
Einfalt og þægilegt
Matarþjálfun er einföld í framkvæmd, eftir fyrsta viðtalið erum við í daglegum samskiptum í gegnum Facebook Messenger. Þú sendir mér myndir af næringu þinni þann daginn, ég leiðbeini þér um matarval og veiti þér markvissa endurgjöf um alla þína næringu.
Betri samsetning máltíða
Ég leiðbeini þér hvernig hægt er að borða meira af hreinni fæðu, um samsetningu próteina, trefja, fitu og kolvetna. Saman finnum við leiðir að settu marki. Við förum yfir svengdartilfinningu, seddutilfinningu og þorstatilfinningu og fókusum saman á jákvæðar breytingar varðandi matarval og næringu á þessum vikum.
Sérhannað fyrir þig
Enginn einstaklingur hefur sama fingrafarið. Það sem hentar þér þarf ekki að henta öðrum og mitt markmið er að vera stuðnings- og aðhaldsboltinn þinn sem hjálpar þér að bæta orku og vellíðan í lífi þínu. Við vinnum saman að því að þú upplifir matinn þinn á jákvæðan hátt með kærleiksríkri nálgun þar sem hrein, litrík og næringarrík fæða kemur inn og gefur þér orku og ánægju.