
LOVÍSA
Lovísa deilir ástríðu systur sinnar á matargerð, hreyfingu og heilbrigðum lífstíl. Hún er reynslubolti á svið matvælaframleiðslu eftir að hafa starfað sem framleiðslustjóri í fiskvinnslu í áratugi. Hennar þekking á framleiðslu, gæðaeftirliti og stöðlun styrkir alla framleiðslu fyrirtækisins og tryggir bestu
mögulegu gæði vörunnar.
Lovísa er HACCP sérfræðingur og útbjó gæðahandbók fyrirtækisins sem notuð hefur verið í öllu vinnsluferlinu frá upphafi. Hún hefur yfirumsjón með
framleiðsluferlinu frá fyrsta handtaki og þar til varan er komin í umbúðir og tilbúin til dreifingar. Stór hluti af hennar vinnu fer í að finna góða samstarfsaðila sem framleiða eða selja hráefnið sem Circolo notar í sínar vörur. Hún leggur áherslu á vönduð vinnubrögð, nákvæmni og stöðlun í ferlinu og hlúir að handverkinu af alúð.